18 > Egilsstaðir hér er ég..
Sælt veri fólkið!..
Nú er ég á Egilsstöðum.. sem er gaman sko 8)..
Kom kl. 5 og fór þá í ísmynd og fékk mér helling af vondu nammi og leyfði helling af fólki stara á ljóta aflitaða hárið mitt.. já gott ef að ég þyki ekki bara minna á þennan mann hérna til vinstri, aðalsöngvara tékknesku Eurodance-sveitarinnar O-Zone.. =)
Ekki slæm samlíking hér á ferð!
Jájá þetta ljósa hár ekki að gera sig..enganveginn.. (varð samt meira hvítt og minna gult þegar ég fór í sturtu áðan og minnkuðu asnalegheit mín um 42,6% við það)
Já og síðan eftir að allir sem að voru staddir í Ísmynd á þessari stundu voru orðnir grænir í framan af..öfund yfir fallega hárinu mínu þá skundaði ég til Magnhildar og hitti þar Magnhildi og Unni og síðan kom hún Linda líka og við horfðum á handbolta og ÍSLAND TAPAÐI. Þetta er alltaf svona með þetta helvítis landslið, vinnum nokkra fyrstu leikina og allir bara 'Veeeeeeei við verðum sko klárlega Evrópumeistarar OMG skiluru' En hvað gerist..já við töpum fyrir Noregi með margra marka mun og látum einn tappa skora fokking 19 mörk - sem að var meira enn hann hafði skorað á mótinu til samans fyrir þennan djöfulsins leik. Frábært!
Húrra fyrir Íslandi.
Ég ætlaði að mæta í skólann í fyrramálið enn er að spá í að sleppa því og koma frekar á mánudaginn..afþví að ég gleymdi að hringja í Birnu og nú er klukkan að verða 1.. Kannski sé ég samt til í fyrramálið og hringi í hana..gwrr.
Annars er ég ekki viss um að það væri gott fyrir geðheilsu nemenda og kennara að ég kæmi í skólann.. Enda er ég með bleika, loðna húfu á hausnum!!! HOHOHO..
Síðan verður þorrinn blótaður í GEE annað kveld og mun ég þar mæta í mínu fínasta pússi og háma í mig kindahausa og punga og annan óþverra..og ball eftir það og það verður bara heljarinnar gaman og gaman!
Að lokum við ég benda fólki á myndina Screaming Masterpiece (Gargandi Snilld)
Hún stendur fyllilega undir nafni!
Þetta er síðan fjandi krúttlegur hundur
http://www.89.com/av/?v=BBW mæli með þessu
Posted by Nafnlaus | 5:15 e.h.
Skrifa ummæli