8 > Skíðaferð dauðans :7
Skellti mér í Bláfjöll í dag á skíði.. ágætis ágæti.
Þetta er eiginlega ekkert það gott skíðasvæði.. brekkurnar eru hálfleiðinlegar (í Kóngsgilinu allavega), kortin sem maður þarf að nota í lyftuna eru þroskaheft (þarf að taka þau úr vasanum og stinga þeim í vélina, baaaaara vesen), það er of mikið af fólki (já það voru víst einhver 10 þúsund manns sem að fóru á skíði þarna í dag, örugglega meira enn helmingurinn þroskaheft brettafólk sem að fer alltaf á milli hliðanna á brekkunni.. fer bara þversum yfir brekkuna á 20 km hraða án þess að pæla í neinu..aular!!
Óþolandi.. maður getur ekkert skíðað þegar að það eru svona fávitar nálægt manni.
Brettafólk sem að kann ekkert á bretti á að halda sig í smábarnabrekkunum :)
Já þetta var ekki alveg nógu magnað.. enn annað sem að gerðist í Bláfjöllum, það datt stelpa framfyrir sig og hálsbrotnaði og það kom þyrla og sótti hana. Svakalega ónett! Samt geðveikt töff að sjá þyrluna þarna í brekkunni, snjórinn fauk út um allt og læti.. þetta var svona bíómyndamóment, 2-3 þúsund manns að glápa á þyrlu og bíða í biðröð... 8)
Enn jæja.. mér tókst að fara alveg 3 ferðir á þessum 2 klukkutímum sem ég var á skíðum :/..skemmtilegar ferðir þrátt fyrir það. Svo beið ég hálftíma eftir að kaupa mér hálfan líter af kók í þessum skíðaskála þarna. Magnað.
Þá hugsaði ég nú.. "Ohh, hversu nett væri það að vera í Stafdal akkúrat núna og láta afgreiða sig strax".. enn svo fauk sú hugsun á brott afþví að það kemur aldrei snjór þangað.. :D
Músík:
Opeth - Ghost Reveries
Art Brut - Bang Bang Rock & Roll
Sindri Eldon - Boring Indie Disco Party
Hehe.. þessi stelpa sem hálsbrotnaði er aðeins ýktari útgáfa af mér bara :).. ég puttabrotnaði og var sótt með vélsleða :D Þessi stelpa hálsbrotnaði og var sótt með þyrlu :D
Posted by Nafnlaus | 7:44 e.h.
Magnhildur er náttúrúlega best í heimi á skíðum !...ég náttúrulega helvíti nett sko 8-)
Posted by Nafnlaus | 7:46 e.h.
Jáhh.. Eiríkur fannst mér samt magnaðastur eiginlega, muniði þegar hann lá á bakinu og rann áfram niður brekkuna þannig alveg á fullu..ahahahah..
æðislegt.
Posted by Arnar Þór | 7:53 e.h.
Nei ég man ekki..snjónum fer síhækkandi..og verður réttbráðum nógu hár til að fara á skíði..samt ekkert eins og ég sé á leiðinni á skíði *-):P
Posted by Nafnlaus | 9:10 e.h.
sammála með brettafólkið - hættið - eiginlega bara því ég kann ekkert á bretti og þá á fólk ekki að vera á brettum
"lifi skíðin"
Posted by Nafnlaus | 3:41 e.h.
sammála með brettafólkið - hættið - eiginlega bara því ég kann ekkert á bretti og þá á fólk ekki að vera á brettum
"lifi skíðin"
Posted by Nafnlaus | 3:47 e.h.
Skíði eru ekki töff! :O .. lúðar! Bretti eru fyrir kúlista :D
P.S. er samt lélegri en allt á bretti :)
Posted by Nafnlaus | 10:32 e.h.
mig langar að eiga bretti. þó ég kunni ekki neitt. meina þá myndi eg bara læra á það 8)
Posted by Nafnlaus | 9:22 e.h.
Skrifa ummæli