4 > DV er dauði
http://www.visir.is/apps/pbcs.dll/article?AID=/20060110/FRETTIR01/60110081/
Svipti sig lífi eftir ásakanir um kynferðisbrot
"Karlmaður á sextugsaldri svipti sig lífi í morgun, eftir að DV birti mynd af honum á forsíðu og bendlaði hann við kynferðislegt ofbeldi gegn ungum piltum. Ásakanirnar gegn honum hafa ekki verið sannaðar og bróðir mannsins segir að DV hafi nánast rekið hann í dauðann.
Á forsíðu DV í morgun var birt mynd af karlmanni með fyrirsögninni "Einhentur kennari sagður nauðga piltum". Fréttin fjallaði um kæru tveggja pilta á hendur manninum fyrir kynferðislegt ofbeldi. Sjálfur sagði maðurinn málið byggt á misskilningi. Þrátt fyrir að enginn dómur hafi fallið í málinu sem í raun er á frumstigi og að orð standi gegn orði, taldi DV rétt að birta mynd af manninum á forsíðu.
Í morgun fann vinur mannsins hann á heimili hans og hafði hann þá tekið eigið líf. Bróðir mannsins sagði í samtali við fréttastofu að fjölskyldan væri sundurtætt af sorg vegna þessa harmleiks. Hann sagðist hafa hringt á ritstjórn DV í dag til að tilkynna þeim andlát bróður síns og fundist rétt að gera það, þar sem hann teldi að fréttaflutningur DV hefði nánast rekið bróður sinn í dauðann.
Jónas Kristjánsson, ritstjóri DV sagðist ekki vera beinn málsaðili að málinu og því vildi hann ekki tjá sig um það þegar fréttastofa hafði samband við hann."
Þetta er eiginlega ekkert annað.
Sama hvort að maðurinn hafi gert þetta eða ekki.. sem að ég efast um.. þá á ekki að birta myndir af fólki á forsíðu dagblaðs og dæma það sem barnanauðgara þegar það er engin sönnun fyrir því.
Viðbjóður.
Allir að hætta að lesa það!
Rétt. Það þarf einhver að stoppa þessa vitleysu.
Posted by Nafnlaus | 2:06 f.h.
Er líka ekki soldið erfitt fyrir 60 einhentan mann að misnota einhverja stráka sem ættu nú alveg að gera sér grein fyri rþessu? úff er þeir eru að ljúga maður..þeir hafa eitthvað á samviskunni..
en já það þarf li´ka að stoppa þessa vitleysinga..kunna greinilega ekki að stoppa...Öss þvílíkt rugl
Posted by Nafnlaus | 10:29 f.h.
Játss..!! aðstoðarskólastjórinn okkar er einhentur og hann er ekki að nauðga beljum!! ..umm.. já við viljum fá link :S
Posted by Nafnlaus | 4:03 e.h.
ég meina unnur.. þó hann sé sextugur getur hann alveg misnotað stráka! ;).. en já dv er alltaf með einhverjar þvílíkar fyrirsagnir og hvða ætli margar af þeim séu sannar? :P
Posted by Nafnlaus | 7:04 e.h.
mér finnst nú mjög hæpið að maðurinn hefði drepið sig bara strax ef hann væri saklaus...
Posted by Nafnlaus | 5:48 e.h.
Saklaus uns sekt er sönnuð.
Það var ekkert sannað í þessu máli.
DV var samt búið að eyðileggja líf þessa manns og mannorð hans.
Posted by Arnar Þór | 6:02 e.h.
Bara drepa þessa gaura í DV sem gerðu þetta
Auga fyrir auga - tönn fyrir tönn
en þeir voru allir margir þannig bara taka af þeim hendurnar
Posted by Nafnlaus | 12:55 f.h.
að higsa sér ég bar einu sinni út dv
Posted by Nafnlaus | 3:58 e.h.
Skrifa ummæli